gamalt.is

Um gamalt.is

Gamalt.is er listi yfir nytjamarkaði, loppur og búðir með notaðar vörur um allt land. Hugmyndin er einföld: að það sé auðvelt að finna hvar þær eru og hvenær þær eru opnar.

Síðan varð til af því að það vantaði einn stað fyrir allar þessar búðir. Upplýsingarnar voru dreifðar um vefsíður og Facebook, og oft var erfitt að vita hvað var enn rétt.

Hver færsla er tekin af síðu búðarinnar sjálfrar eða úr opinberum skrám, og tengill á heimildina fylgir. Þar sem stendur „óstaðfest“ fannst engin örugg heimild, til dæmis þegar búð er bara með Facebook-síðu. Við förum reglulega yfir listann en opnunartímar breytast, svo það borgar sig að hringja áður en maður keyrir langt.

Gamalt.is er óháð og engin búð á listanum rekur síðuna eða borgar fyrir að vera á henni. Sérðu villu, eða vantar búð? Sendu póst á [email protected].