gamalt.is

Algengar spurningar um nytjamarkaði á Íslandi

Stutt svör við því sem fólk spyr oftast um. Opnunartímar og heimilisföng eru á síðu hverrar búðar.

Hvað er nytjamarkaður?

Búð sem selur notaða hluti sem fólk hefur gefið, oft til styrktar góðu málefni. Þar fást föt, húsgögn, bækur, borðbúnaður og alls konar dót.

Hver er munurinn á nytjamarkaði, loppu og flóamarkaði?

Á nytjamarkaði rekur félag eða stofnun búðina og selur það sem því hefur borist. Í loppu leigir fólk bás og selur sitt eigið dót. Á flóamarkaði eins og Kolaportinu eru margir söluaðilar undir sama þaki.

Hvað er Góði hirðirinn?

Góði hirðirinn er nytjamarkaður SORPU á Köllunarklettsvegi 1 í Reykjavík. Þar eru húsgögn, lampar, borðbúnaður, bækur og plötur. Í júní 2026 opnaði útibú við Breiðhellu í Hafnarfirði, mest með framkvæmdarefni.

Hvar eru Rauðakrossbúðirnar í Reykjavík?

Á Laugavegi 12, við Hlemm, í Mjódd og í Kringlunni. Rauði krossinn rekur líka búðir víða um land. Allar búðir á svæðinu eru á síðunni um Höfuðborgarsvæðið.

Hvar eru nytjamarkaðir á Akureyri?

Á Akureyri eru Hertex, Fjölsmiðjan, Rauðakrossbúðin og Norðurhjálp, og loppurnar Lottan og Aftur nýtt. Fjölsmiðjan er mest með húsgögn og húsbúnað. Sjá listann fyrir Norðurland.

Hvar eru nytjamarkaðir á Selfossi?

Á Selfossi eru Rauðakrossbúðin, Nytjamarkaður Hvítasunnukirkjunnar og loppurnar Krílafló og Venus. Sjá listann fyrir Suðurland.

Hvar fæ ég notuð barnaföt og barnavörur?

Barnaloppan við hliðina á Góða hirðinum er með barnaföt, leikföng, vagna og bílstóla. Á Selfossi er Krílafló með barnavörur.

Hvar fæ ég notuð húsgögn?

Góði hirðirinn er með mikið úrval. ABC á Smiðjuvegi er með húsbúnað og á Akureyri er Fjölsmiðjan mest með húsgögn. Gömul húsgögn og antík finnurðu í fornsölunum. Þær sjást ef þú kveikir á þeim í listanum.

Hvað þýðir „óstaðfest“ á síðunni?

Að engin örugg heimild fannst fyrir upplýsingunum, eða að heimildir stangast á. Þá er betra að hringja eða kíkja á Facebook-síðu búðarinnar áður en þú ferð.

Hvernig læt ég vita ef eitthvað er rangt eða búð vantar?

Sendu póst á [email protected]. Við lögum það þegar við höfum fundið heimild.

In English